Ísland fékk gullið (myndskeið)

Valdís Þóra Jónsdóttir, Ólafía Þórunn Kristinsdóttir, Axel Bóasson, Birgir Leifur …
Valdís Þóra Jónsdóttir, Ólafía Þórunn Kristinsdóttir, Axel Bóasson, Birgir Leifur Hafþórsson. Ljósmynd/Tristan Jones


Ísland varð Evrópumeistari blandaðra liða atvinnumanna í golfi á Gleneagles-vellinum í Skotlandi á laugardaginn. 

Lið Íslands var skipað Axel Bóassyni, Birgi Leifi Hafþórssyni, Ólafíu Þórunni Kristinsdóttur og Valdísi Þóru Jónsdóttur. Þau unnu lið Bretlands í úrslitum en leikin var holukeppni eins og tíðkast í liðakeppnum. 

Meðfylgjandi er myndskeið frá mótshöldurum af sigri Íslands. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert