Ólafía á einu höggi yfir pari

Ólafía Þórunn Kristinsdóttir spilaði á einu höggi yfir pari á …
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir spilaði á einu höggi yfir pari á Spáni í dag. Ljósmynd/Golf.is

Atvinnukylfingurinn Ólafía Þórunn Kristinsdóttir hóf í dag leik á Estrella Damm-mótinu sem fram fer á Terramar-vellinum á Spáni en mótið er hluti af Evrópumótaröðinni í golfi. Ólafía spilaði hringinn í dag á 72 höggum eða einu höggi yfir pari.

Ólafía byrjaði vel og fékk tvo fugla og fimm pör á fyrstu sjö holunum. Hún fékk skolla á áttundu braut og á seinni níu holunum fékk hún sjö pör og tvo skolla. Hún er sem stendur í 57.-68. sæti en ekki hafa allir kylfingar lokið leik í dag og gæti staða hennar því breyst lítillega.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert