Ólafía aftur tveimur höggum undir pari

Ólafía Þórunn Kristinsdóttir.
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir. mbl.is/Árni Sæberg

Atvinnukylfingurinn Ólafía Þórunn Kristinsdóttir átti aftur góðan hring á Estrella Damm-mótinu á Terramar-vellinum á Spáni. Ólafía átt góðan hring í dag, lék á 69 höggum eða tveimur undir pari, rétt eins og í gær.

Ólafía komst í gegnum niðurskurðinn í gær og hóf þriðja hringinn í morgun en hún byrjaði á níundu holunni. Henni gekk heldur brösuglega framan af degi og var á pari fyrir síðustu fjórar holurnar. Þar nældi hún í tvo fugla til að jafna við árangurinn í gær og situr hún í 43.-51. sæti þegar örfáir kylfingar eiga eftir að ljúka keppni í dag.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert