Oosthuizen sigraði á heimavelli

Louis Oosthuizen
Louis Oosthuizen AFP

Louis Oosthuizen frá Suður-Afríku sigraði í gær á Opna Suður-Afríkumótinu sem er hluti af Evrópumótaröðinni í golfi. Hafði hann aldrei fyrr sigrað á mótinu þrátt fyrir farsælan feril. 

Oosthuizen lék gríðarlega vel og lauk leik á 18 höggum undir pari samtals og hafði sex högga forskot þegar yfir lauk. Er það met í mótinu að munurinn á milli þeirra sem hafna í 1. og 2. sæti sé svo mikill. 

Oosthuizen er 36 ára og hefur níu sinnum sigrað á mótum á Evrópumótaröðinni. Frægðarsól hans reis hæst þegar hann sigraði á The Open á gamla vellinum í St. Andrews árið 2010. Hann glímdi við bakmeiðsli seinni hluta tímabilsins en virðist nú hafa náð sér. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert