Þegar árið er bráðum liðið sitja þau Ariya Jutanugarn frá Tælandi og Brooks Koepka frá Bandaríkjunum í efstu sætum heimslistanna í golfi.
Staða Asíubúa er frábær hjá honunum en næstu þrjár koma frá Suður-Kóreu. Fara þarf niður í 5. sæti listans til að finna bandarískan kylfing og er það Lexi Thompson sem er byrjuð að keppa á ný eftir að hafa tekið sér pásu.
Justin Rose frá Englandi kemur skammt á eftir Koepka. Tiger Woods er í 14. sæti og hefur klifrað ævintýralega upp listann á þessu ári.