Mickelson sýndi frábær tilþrif

Phil Mickelson.
Phil Mickelson. AFP

Bandaríkjamaðurinn Phil Mickelson sýndi frábær tilþrif á fyrsta hringnum á Desert Classic-golfmótinu sem hófst í Bandaríkjunum í gær.

Mickelson sýndi allar sínar bestu hliðar og lék fyrsta hringinn á 60 höggum eða á tólf höggum undir pari. Hann fékk fjóra fugla og einn örn á fyrri níu holunum og á síðari níu fékk hann sex fugla.

Mickelson er með þriggja högga forskot á landa sinn, Adam Long, sem lék á 63 höggum og Ástralinn Curtis Luck lék hringinn á 64 höggum og er í þriðja sætinu.

Staðan á mótinu

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert