1 högg = 145 milljónir

Brooks Koepka átti ágæta möguleika á fugli á tveimur síðustu …
Brooks Koepka átti ágæta möguleika á fugli á tveimur síðustu holunum en nýtti þá ekki. AFP

Tiger Woods fékk 2 milljónir og 70 þúsund dollara fyrir sigurinn á Masters á sunnudag. Þrír kylfingar voru aðeins höggi á eftir honum og þetta eina högg er kostnaðarsamt ef þannig má að orði komast. 

Tiger fékk því um 248 milljónir íslenskra króna en hann lék á 13 höggum undir pari. Næstir komu Dustin Johnson, Brooks Koepka og Xander Schauffele á 12 undir pari. 

Þremenningarnir fengu 858 þúsund dollara hver sem gerir um 103 milljónir íslenskra króna. Eitt högg getur því skipt miklu máli fyrir veskið á þeim fjórum hringjum sem spilaðir eru á risamótum í golfi. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert