Bandaríkjamaðurinn Brooks Koepka er kominn í efsta sæti heimslistans í golfi eftir sigurinn á PGA-meistaramótinu í gærkvöld.
Koepka velti landa sínum, Justin Johnson, úr efsta sætinu en Johnson er í öðru sæti og Englendingurinn Justin Rose er í þriðja sætinu.
Tiger Woods, sem komst ekki í gegnum niðurskurðinn á PGA meistaramótinu, stendur í stað og er í sjötta sæti á heimslistanum.