Kylfingurinn Guðmundur Ágúst Kristjánsson er úr leik á Made in Denmark-mótinu í Danmörku en mótið er hluti af Evrópumótaröðinni í golfi.
Guðmundur, sem vann sér sæti á mótið með góðri stöðu sinni á stigalista dönsku atvinnumótaraðarinnar, lék annan hringinn í morgun á miklu betra skori en í gær. Hann var á þremur höggum yfir pari en í gær lék hann hringinn á sjö höggum yfir parinu.
Guðmundur fékk fimm skolla á hringnum í dag og tvo fugla og er í 153. sæti eða í neðsta sæti á 10 höggum yfir pari.