Berglind Björnsdóttir og Guðrún Brá Björgvinsdóttur luku í dag leik á Montauban Lades Open. Mótið er hluti af LET Access-mótaröðinni í golfi, en mótið fór fram í Frakklandi.
Guðrún Brá lék betur í dag eða á 74 höggum og endaði í 42. sæti á samtals 10 höggum yfir pari. Berglind var í 31. sæti fyrir lokahringinn, en lék illa í dag, eða á 81 höggi. Hún endaði í 54. sæti á 14 höggum yfir pari.
Næsta mót á mótaröðinni er Belfius Ladies Open dagana 27.-29. júní í Belgíu. Þar er Guðrún Brá skráð til leiks, en Berglind ekki.