Atvinnukylfingurinn Haraldur Franklín Magnús lék afar vel á öðrum hringnum á 1. stigs úrtökumótsins fyrir Evrópumótaröð karla í golfi í Austurríki í morgun.
Haraldur Franklín lék hringinn á 66 höggum eða á sex höggum undir pari og hann er samanlagt 10 höggum undir pari eftir hringina tvo.
Haraldur fékk sjö fugla á hringnum í dag og aðeins einn skolla og þegar þetta er skrifað er hann jafn í fyrsta sæti en margir kylfingar eiga eftir að ljúka leik í dag.