Skrautlegur hringur hjá Valdísi Þóru

Valdís Þóra Jónsdóttir.
Valdís Þóra Jónsdóttir. Ljósmynd/GSÍ

Það gekk á ýmsu hjá Skagakonunni Valdísi Þóru Jónsdóttur á fyrsta hringnum á opna Lacoste Ladies Open-mótinu í golfi í Frakklandi dag en mótið er hluti af LET-Evrópumótaröðinni, þeirri sterkustu hjá atvinnukylfingum í Evrópu í kvennaflokki.

Valdís Þóra var í góðum málum eftir fyrri níu holurnar en hún var þá á einu höggi undir pari. Hún hóf seinni hlutann með því að fá par á 10. og 11. holurnar en fékk svo fjórfaldan skolla á 12. holunni og fékk svo síðar þrjá skramba í röð.

Valdís kom í hús á 79 höggum eða á átta höggum yfir pari og er þegar þetta er skrifað jöfn í 100. sæti en ekki hafa allir kylfingar lokið leik í dag.

Staðan á mótinu

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert