GKG keppir fyrir Íslands hönd á EM golfklúbba

Ragnar Már Garðarsson.
Ragnar Már Garðarsson. mbl.is/Styrmir Kári

Golfklúbbur Kópavogs og Garðabæjar tekur þátt á Evrópumóti golfklúbba í karlaflokki sem fram fer í Frakklandi 23.-25. október.

GKG tryggði sér keppnisrétt á mótinu með því að sigra á Íslandsmóti golfklúbba sem fram fór á Leirdalsvelli og Urriðavelli í sumar. Keppt er á Golf du Medoc-keppnisvellinum sem er ekki langt frá borginni Bordeux.

Bræðurnir Sigurður Arnar Garðarsson og Ragnar Már Garðarsson keppa fyrir GKG ásamt Aroni Snæ Júlíussyni.

Þetta er í annað sinn sem þeir félagar keppa fyrir GKG á þessum velli á EM golfklúbba en mótið fór fram á þessum velli fyrir tveimur árum.

Alls eru 25 klúbbar sem taka þátt á EM golfklúbba.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert