Guðmundur og Valdís best á árinu

Guðmundur Ágúst Kristjánsson og Valdís Þóra Jónsdóttir.
Guðmundur Ágúst Kristjánsson og Valdís Þóra Jónsdóttir. Ljósmynd/GSÍ

Golfsamband Íslands hefur valið kylfinga ársins 2019. Þeir eru Guðmundur Ágúst Kristjánsson úr Golfklúbbi Reykjavíkur og Valdís Þóra Jónsdóttir úr Golfklúbbnum Leyni á Akranesi.

Þetta er í 22. skipti sem tveir einstaklingar eru valdir sem kylfingar ársins hjá GSÍ, kona og karl. Þetta er í þriðja sinn sem Valdís Þóra fær þessa viðurkenningu en í fyrsta sinn sem Guðmundur Ágúst er valinn.

Sjá nánar á vef Golfsambands Íslands.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert