Íslandsmeistarinn úr leik eftir erfiðan dag

Guðmundur Ágúst Kristjánsson náði sér ekki á strik í dag.
Guðmundur Ágúst Kristjánsson náði sér ekki á strik í dag. Kristinn Magnússon

Íslandsmeistarinn Guðmundur Ágúst Kristjánsson er úr leik á Di­mensi­on Data Pro Am-mót­inu á Áskor­enda­mótaröð Evr­ópu í golfi eftir slakan þriðja hring í Suður-Afríku í dag. 

Guðmundur náði sér alls ekki á strik og lék á 81 höggi, átta höggum yfir pari. Hann var á parinu eftir fyrstu tvo dagana og lýkur því leik á samanlagt átta yfir og í 163. sæti. 

Heimamaðurinn Christiaan Bezuidenhout er með forystu eftir hringina þrjá á samanlagt 20 höggum undir pari.

Ernie Els, sem þrívegis hefur unnið á risamóti, er úr leik, en hann lék samanlagt á sex höggum undir pari og var einu höggi frá því að komast í gegnum niðurskurðinn. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert