Heppinn að sleppa lifandi frá slysinu

Bandaríski kylfingurinn Tiger Woods er með alvarlega áverka á báðum fótum en er heppinn að vera á lífi segja lögreglumenn sem komu að slysinu. Bifreið Woods valt nokkra hringi en svo virðist sem hann hafi misst stjórn á bifreiðinni. Hann var hvorki undir áhrifum áfengis né lyfja þegar slysið varð snemma í gærmorgun skammt frá Los Angeles.

Woods fór í aðgerð í gær en um alvarleg meiðsl er að ræða á neðri hluta hægri fótleggs og ökkla. 

Að sögn læknis er Woods vakandi og á batavegi á sjúkrahúsi. 

Lögreglan segir að Woods hafi ekið of hratt miðað við aðstæður en slysið varð á þekktum slysastað. Lögreglumaðurinn  Carlos Gonzalez sem kom fyrst á slysstað segir að Woods hafi verið heppinn að sleppa lifandi en hann var fastur í bifreiðinni þegar lögregla kom á vettvang. 



mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert