Frábær fyrsti hringur Haralds

Haraldur Franklín Magnús lék frábærlega í dag
Haraldur Franklín Magnús lék frábærlega í dag mbl.is/Kristinn Magnússon

Atvinnukylfingurinn Haraldur Franklín Magnús lék frábært golf á fyrsta hring skoska Farmfoods Challenge mótinu á Newmachar-vellinum í dag. Haraldur lauk leik á 66 höggum, fimm höggum undir pari. 

Haraldur fékk fjóra fugla og tapaði ekki höggi á fyrri níu holum sínum. Þá fékk Haraldur þrjá fugla og einn tvöfaldan skolla á seinni níu holum sínum. Haraldur deilir þriðja sætinu með Skotanum Craig Lee. 

Guðmundur Ágúst Kristjánsson lék einnig á mótinu í dag. Hann lék á 72. höggum, einu höggi yfir pari og var með þrjá fugla. Guðmundur er í 75. sæti keppninnar. 

Haraldur Franklín og Guðmundur Ágúst spila næsta hring sinn fyrir klukkan 14 á morgun. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert