Bandaríkjamaðurinn í fámennan hóp kylfinga

Brooks Koepka með bikarinn eftirsótta í gær.
Brooks Koepka með bikarinn eftirsótta í gær. AFP/Kevin C. Cox

Bandaríkjamaðurinn Brooks Koepka fagnaði sigri á PGA-meistaramótinu í golfi sem lauk á Oak Hill-vellinum í Rochester í Bandaríkjunum í gærkvöld.

Koepka, sem er 33 ára gamall, lék hringina fjóra á samtals 271 höggi eða níu höggum undir pari vallarins.

Scottie Scheffler frá Bandaríkjunum og Viktor Hovland frá Noregi höfnuðu í 2.-3. sæti á samtals sjö höggum undir pari.

Þetta var fimmti sigur Koepka á risamóti í golfi en einungis 20 kylfingar hafa afrekað það í gegnum tíðina.

Bandaríkjamaðurinn Jack Nicklaus trónir á toppi listans með 18 sigra á risamótum og Bandaríkjamaðurinn Tiger Woods er annar með 15 sigra.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert