Logi Geirsson skoraði 7 mörk, þar af 5 úr vítaköstum þegar lið hans, Lemgo vann góðan sigur á Flensburg í viðureign liðanna í þýsku 1. deildinni í handknattleik, 30:29. Bæði lið voru í mikilli toppbaráttu fyrir leikinn. Sigur Lemgo fleytti liðinu þar með í fína stöðu, því það er aðeins tveimur stigum á eftir toppliði Kiel.
Vignir Svavarsson var einnig í liði Lemgo og skoraði hann eitt mark í leiknum.