Arna Sif Pálsdóttir, landsliðskona í handknattleik, hefur flutt sig um set innan Danmerkur. Hún hefur skrifað undir samning við úrvalsdeildarliðið Team Esbjerg en hún var í herbúðum Horsens á síðasta tímabili. Horsens féll úr úrvalsdeildinni í vor.
Arna Sif, sem er 22 ára gömul, skoraði 19 mörk í 20 leikjum fyrir Horsens og lék stórt hlutverk í varnarleiknum.
Þar með bendir allt til að þrjár landsliðskonur leiki með dönskum úrvalsdeildarliðinu á næsta keppnistímabili. Rut Jónsdóttir leikur áfram með Team Tvis Holstebro, Arna Sif hjá Team Esbjerg og flest bendir til þess að Þorgerður Anna Atladóttir gangi til liðs við FIF í Kaupmanahöfn eins og Morgunblaðið greindi frá í gær.
Nánar er sagt frá Örnu Sif og félagsskiptum hennar í íþróttablaði Morgunblaðsins sem kom út í morgun.