Þýska handknattleiksfélagið Eisenach hefur sagt þjálfaranum Aðalsteini Eyjólfssyni upp störfum en hann hefur stýrt liðinu í fjögur og hálft ár.
Þetta var tilkynnt eftir ósigur liðsins gegn Hamm á útivelli í gærkvöld, 37:33, en að honum loknum er liðið í tíunda sæti af tuttugu liðum í 2. deildinni. Aðalsteinn stýrði liðinu upp í efstu deild fyrir tveimur árum en það féll aftur þaðan í vor.
Hannes Jón Jónsson og Bjarki Már Elísson leika með Eisenach. Hannes skoraði 8 mörk í leiknum í gær og Bjarki 2.