Íslenska kvennalandsliðið skipað leikmönnum 17 ára og yngri tapaði stórt fyrir Rússum í undankeppni EM kvenna í Færeyjumí dag. Lokatölur 34:17.
Rússar tóku leikinn strax í sínar hendur og staðan í hálfleik var 17:8 fyrir Rússa.
Markahæst í liði Íslands var Lovísa Thompson með 5 mörk í átta skotum. Andrea Jacobsen og Karen tinna Demian gerðu 3 mörk hvor, Ragnhildur Edda Þórðardóttir gerði 2 mörk og þær Sandra Erlingsdóttir, Mariam Eradze, Þórunn Sigurbjörnsdóttir og Helena Kristjánsdóttir eittmark hver.
Íslenska liðið mætir Tékkum á morgun en Rússar unnu Tékka í gær 34:17, alveg eins og þeir unnu Ísland í dag.