Erfiðar 57 mínútur

„Við nálguðumst þá undir lokin og voru nærri búnir að tryggja okkur í framlengingu eftir erfiðar 57 mínútur,” sagði Arnar Pétursson, þjálfari ÍBV eftir að lið hans fell úr leik á Íslandsmótinu í handknattleik eftir tap fyrir Haukum, 30:28, í Vestmannaeyjum í dag í fjórða leik liðanna.

„Mér fannst við ekki vera nægilega skynsamir í sóknarleiknum lengst af. Ég saknaði framlags frá fleirum í sóknarleiknum. Það fór fyrst og fremst með leikinn hjá okkur að þessu sinni,” sagði Arnar Pétursson.

„Þegar á leið kom í ljós að standið á leikmönnum okkar er ekki nógu gott vegna meiðsla. Það fór líka með okkur í svona einvígi,” sagði Arnar Pétursson, þjálfari ÍBV.

Nánar er rætt við Arnar á meðfylgjandi myndskeiði.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert