Ómar í úrvalsliðinu

Ómar Ingi Magnússon á æfingu með landsliðinu fyrir mótið.
Ómar Ingi Magnússon á æfingu með landsliðinu fyrir mótið. Ljósmynd/Golli / Kjartan Þorbjörnsson

Handknattleiksmaðurinn Ómar Ingi Magnússon var valinn í úrvalslið á æfingamóti sem íslenska landsliðið lék á um helgina. Hin 19 ára skytta var markahæst í leikjunum gegn Pólverjum og Norðmönnum og næstmarkahæst gegn Svíum. Ómar leikur með danska úrvalsdeildarliði Århus.

Strákarnir okkar unnu Pólverja, töpuðu fyrir Norðmönnum og gerðu jafntefli gegn Svíum.

Úrvalslið mótsins:

Markmaður: Torbjørn Bergerud, Noregur
Vinstri hornamaður: Emil Frend Öfors, Svíþjóð
Línumaður: Bjarte Myrhol, Noregur 
Hægri hornamaður: Magnus Søndenå, Noregur
Miðjumaður: Sander Sagosen, Noregur
Vinstri skytta: Rafal Przybylski, Pólland
Hægri skytta: Ómar Ingi Magnússon, Ísland

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka