Haraldur Þorvarðarson hefur verið ráðinn í þjálfarateymi Aftureldingar og mun hann sjá um að þjálfa meistaraflokk kvenna í handknattleik ásamt Davíð Svanssyni sem hefur þjálfað liðið undanfarin tvö ár.
Haraldur var aðstoðarþjálfari kvennaliðs Fram áður en hann tók við Fylki fyrir síðustu leiktíð, en hann var rekinn í janúar.
Hekla Rún Ámundadóttir hefur svo skrifað undir tveggja ára samning við Aftureldingu, en hún kemur frá Íslandsmeisturum Fram. Hekla skoraði 21 mark í tíu leikjum fyrir Fram á síðustu leiktíð.