Íslandsmeistarar Vals í handknattleik karla hafa samið við japanska landsliðsmanninn Ryuto Inage og mun hann leika með liðinu í vetur. Þetta kemur fram á twittersíðu Vals.
Inage er ekki kominn með leikheimild en hann kemur til Valsmanna frá japanska liðinu Wakunaga sem Dagur Sigurðsson lék með og þjálfaði á sínum tíma en Inage leikur með japanska landsliðinu undir stjórn Dags.
Japanski landsliðsmaðurinn Ryuto Inage er kominn til landsins. Hann leikur með Val í vetur. Hann er þó ekki enn orðinn löglegur. #handbolti
— Valur handbolti (@valurhandbolti) September 25, 2017