Jafnt hjá sænskum lærisveinum Kristjáns

Kristján Andrésson þjálfar sænska liðið.
Kristján Andrésson þjálfar sænska liðið. AFP

Lærisveinar Kristjáns Andréssonar í sænska karlalandsliðinu í handbolta gerðu 29:29-jafntefli gegn Ungverjalandi í vináttuleik í dag. Leikurinn er liður í undirbúningi fyrir Evrópumótið í Króatíu sem hefst 12. janúar næstkomandi, en þá mæta Svíar einmitt Íslendingum. 

Sænska liðið mætir því ungverska aftur á mánudaginn kemur. Frændþjóðir okkar í Danmörku og Noregi léku einnig vináttuleik í Danmörku í dag og höfðu Norðmenn betur, 27:25.

Frakkar lögðu svo Egypta í sínum undirbúningi, 33:23. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert