Sterkur sigur Vals í Eyjum

Magnús Óli Magnússon fær óblíðar móttökur frá varnarmönnum ÍBV í …
Magnús Óli Magnússon fær óblíðar móttökur frá varnarmönnum ÍBV í kvöld. Ljósmynd/Sigfús Gunnar

Valur gerði góða ferð til Vestmannaeyja og vann ÍBV, 31:28, í Olísdeild karla í handbolta í kvöld. Eyjamenn voru yfir stærstan hluta fyrri hálfleiks og komust m.a í 13:9. Valsmenn voru hins vegar sterkir undir lok hálfleiksins og var staðan eftir hann 14:13.

Seinni hálfleikur var jafn og spennandi þangað til í blálokin er Valsmenn sigu fram úr og tryggðu sér sigurinn. Eyjamaðurinn Sigurbergur Sveinsson var markahæstur í leiknum með átta mörk, en Magnús Óli Magnússon skoraði sjö fyrir Val og Sveinn Aron Sveinsson gerði sex. 

Með sigrinum fóru Valsmenn upp fyrir Hauka og upp í 4. sæti deildarinnar, en Eyjamönnum mistókst að setja meiri pressu á topplið FH og eru enn í öðru sæti, fimm stigum á eftir Hafnfirðingum.

ÍBV 28:31 Valur opna loka
60. mín. Magnús Óli Magnússon (Valur) skoraði mark Sjö mörk! Lykilmaður í þessum sigri Valsmanna!
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert