Sigurmark Arons (myndskeið)

Aron Pálmarsson.
Aron Pálmarsson. Ljósmynd/Twitter

Aron Pálmarsson skoraði sigurmark Barcelona gegn Atlético Valladolid í spænsku úrvalsdeildinni í handknattleik eins og fram kom á mbl.is. í dag.

Barcelona fagnaði sigri, 30:29, og skoraði Aron sigurmarkið með skoti beint úr aukakasti eftir að leiktíminn rann út en markið má sjá í meðfylgjandi myndskeiði.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert