Guðmundur og Patrekur orðaðir við Göppingen

Guðmundur Þórður Guðmundsson, landsliðsþjálfari í handknattleik karla.
Guðmundur Þórður Guðmundsson, landsliðsþjálfari í handknattleik karla. mbl.is/Goli

Guðmundur Þórður Guðmundsson, landsliðsþjálfari karla í handknattleik, og Patrekur Jóhannesson, þjálfari karlaliðs Selfoss og austurríska karlalandsliðsins, eru meðal þeirra sem orðaðir eru við starf þjálfara þýska 1.deildarliðsins Göppingen. 

Patrekur Jóhannesson, þjálfari Selfoss og austurríska landsliðsins er orðaður við …
Patrekur Jóhannesson, þjálfari Selfoss og austurríska landsliðsins er orðaður við þjálfarastarfið hjá Göppingen í í Þýskalandi. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Frá þessu er m.a. greint í Stuttgarter-Nachrichten. Göppingen er í leit að eftirmanni Rolf Brack sem var látinn taka pokann sinn á dögunum. Patrekur og Guðmundur Þórður eru sterklega orðaðir við starfið en einnig Juri Schevtsov, landsliðsþjálfari Hvít-Rússa og fyrrverandi þjálfari Tusem Essen og Markus Baur fyrrverandi landsliðsmaður Þýskalands og áður þjálfari Lemgo og Stuttgart.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert