Matthías Örn aftur í Selfoss

Matthías Örn Halldórsson.
Matthías Örn Halldórsson. Ljósmynd/Selfoss

Matthías Örn Halldórsson hefur gert tveggja ára samning við handknattleiksdeild Selfoss. Matthías er 27 ára Selfyssingur og spilaði með Selfoss í nokkur ár áður en hann fór til Fjölnis í eitt tímabil.

Hann hefur verið í pásu frá handbolta vegna náms. „Við bjóðum Matta velkominn aftur heim og vonumst til að hann verði góð viðbót við sterkan hóp liðsins,“ segir í yfirlýsingu sem Selfoss sendi frá sér í dag. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert