KA semur við Bosníumann

Tarik Kasumovic er orðinn leikmaður KA.
Tarik Kasumovic er orðinn leikmaður KA. Ljósmynd/KA.is

Handknattleiksdeild KA samdi í dag við Bosníumanninn Tarik Kasumovic. Hann 26 ára vinstri skytta, 202 cm á hæð og 102 kíló.

Tarik hefur leikið í Þýskalandi, Sviss, á Spáni og í Bosníu og lék meðal annars í Meistaradeild Evrópu með Bosna Sarajevo auk þess sem hann var í unglingalandsliðum Bosníu þar sem hann lék á HM 2013.

„Það verður mjög spennandi að sjá til Tariks á tímabilinu en hann hefur æft með liðinu að undanförnu og lék með liðinu í æfingaleikjum um síðustu helgi. Stuðningsmenn KA geta svo séð til kappans á Opna norðlenska mótinu dagana 23.-25. ágúst í KA-heimilinu.

Við bjóðum Tarik velkominn í KA og væntum mikils af þessum flotta leikmanni,“ segir í yfirlýsingu sem KA sendi frá sér í dag. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert