Sigvaldi í hópi markahæstu í Meistaradeildinni

Sigvaldi Björn Guðjónsson, leikmaður Elverum.
Sigvaldi Björn Guðjónsson, leikmaður Elverum. Ljósmynd/Elverum

Landsliðsmaðurinn Sigvaldi Guðjónsson, leikmaður norska liðsins Elverum, er í hópi markahæstu leikmanna í Meistaradeild Evrópu í handknattleik.

Hornamaðurinn knái hefur skorað 43 mörk og er í 5.-8. sæti yfir markahæstu leikmenn í riðlakeppninni. Ólafur Andrés Guðmundsson, Kristianstad, og Guðjón Valur Sigurðsson úr Rhein-Neckar Löwen hafa skorað 34 mörk og eru í 35.-42. sæti á markalistanum.

Spánverjinn Alex Dujshebaev úr pólska liðinu Kielce og Finninn Nico Rönnberg úr finnska liðinu Riihimäen Cocks eru markahæstir en báðir hafa þeir skorað 55 mörk.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert