Sigvaldi og Þráinn unnu bikarinn

Leikmenn Elverum fagna bikarmeistaratitlinum í kvöld.
Leikmenn Elverum fagna bikarmeistaratitlinum í kvöld. Ljósmynd/Svein André Svendsen/NHF

Sigvaldi Björn Guðjónsson og Þráinn Orri Jónsson fögnuðu í kvöld bikarmeistaratitlinum í norska handboltanum þegar lið þeirra Elverum vann öruggan sigur á Halden, 30:22, í úrslitaleik bikarkeppninnar.

Þráinn skoraði 4 mörk í leiknum og Sigvaldi tvö en Sigvaldi er á leið til móts við íslenska landsliðið sem er í lokaundirbúningi sínum fyrir heimsmeistaramótið sem hefst í Þýskalandi og Danmörku 10. janúar.

Sigurinn var kærkominn fyrir Elverum sem hafði þurft að bíða í níu ár frá síðasta bikarmeistaratitli og tapað tveimur síðustu úrslitaleikjum sínum í keppninni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert