Löwen með naumt forskot til Frakklands

Guðjón Valur Sigurðsson skoraði fjögur fyrir Löwen.
Guðjón Valur Sigurðsson skoraði fjögur fyrir Löwen. mbl.is/Kristinn Magnússon

Þýska liðið Rhein-Neckar Löwen hafði betur gegn Frökkunum í Nantes í fyrri leik liðanna í 16-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu í handbolta á heimavelli í kvöld, 34:32. 

Staðan í hálfleik var 18:16, Löwen í vil, og skömmu fyrir leikslok náði Löwen fimm marka forskoti, 31:26. Góður endasprettur Nantes sá til þess að munurinn var tvö mörk er flautað var til leiksloka. 

Guðjón Valur Sigurðsson skoraði fjögur mörk fyrir Löwen og Alexander Petersson skoraði þrjú. Síðari leikur liðanna fer fram í Nantes 30. mars. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert