Elverum í afar góðri stöðu

Sigvaldi Björn Guðjónsson
Sigvaldi Björn Guðjónsson AFP

Elverum vann stórsigur á Fyllingen 42:29 í undanúrslitum í keppninni um sæti Noregs í Meistaradeildinni í handknattleik á næsta ári en vinna þarf tvo leiki til að komast í úrslit. 

Liðin mættust í dag á heimavelli Elverum og mætast næst á heimavelli Fyllingen. 

Landsliðsmaðurinn Sigvaldi Guðjónsson skoraði 4 mörk fyrir Elverum og línumaðurinn Þráinn Orri Jónsson skoraði eitt mark. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert