Þorsteinn Gauti til Aftureldingar

Þorsteinn Gauti Hjálmarsson í leik með Fram.
Þorsteinn Gauti Hjálmarsson í leik með Fram. mbl.is/Hari

Þorsteinn Gauti Hjálmarsson er genginn í raðir Aftureldingar en hann kemur frá Fram og var drjúgur í markaskorun fyrir Framara í Olís-deildinni í handknattleik í vetur. 

Staðarblaðið Mosfellingur greinir frá þessu og kemur fram að Þorsteinn geri tveggja ára samning við Aftureldingu. 

Þorsteinn Gauti er 24 ára gamall og uppalinn hjá Þrótti. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert