Íslendingaliðið Elverum tryggði sér sigur í úrslitakeppninni í norsku úrvalsdeildinni í handknattleik í kvöld.
Elverum vann Arendal 31:28 í þriðja úrslitaleik liðanna og vann Elverum einvígið 3:0. Með sigrinum tryggði Elverum sér farseðil í forkeppni Meistaradeildar Evrópu á næstu leiktíð.
Hornamaðurinn Sigvaldi Björn Guðjónsson var markahæstur í liði Elverum en hann fór á kostum og skoraði átta mörk í níu skotum. Þráinn Orri Jónsson náði ekki að komast á blað.