Andrea til liðs við Val

Andrea Gunnlaugsdóttir í leik með ÍBV.
Andrea Gunnlaugsdóttir í leik með ÍBV. mbl.is/Kristinn Magnússon

Meistaralið Vals í handbolta kvenna hefur fengið til liðs við sig markvörðinn Andreu Gunnlaugsdóttur frá ÍBV og hefur hún skrifað undir tveggja ára samning við Hlíðarendaliðið.

Andrea er 17 ára gömul og hefur spilað með yngri landsliðunum. Hún lék með ÍBV í Olís-deildinni á nýafstaðinni leiktíð og varði mark liðsins eftir að Guðný Jenny Ásmundsdóttir sleit krossband í hné.

 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert