Íslenska U17 ára landslið pilta í handknattleik leikur á morgun um þriðja sætið á opna Evrópumótinu sem fram fer í Svíþjóð.
Eins og fram kom á mbl.is fyrr í dag unnu íslensku strákarnir lið Tékka en töpuðu fyrir Svíum í milliriðli sínum í dag.
Ísland mætir Hvíta-Rússlandi í leiknum um þriðja sætið í Scandinavium-höllinni í Gautaborg á morgun en Svíþjóð og Færeyjar leika til úrslita.