Valur stakk af í seinni hálfleik

Díana Dögg Magnúsdóttir skoraði sex mörk.
Díana Dögg Magnúsdóttir skoraði sex mörk. mbl.is/Kristinn Magnússon

Íslandsmeistarar Vals eru með fullt hús stiga eftir tvo leiki í Olísdeild kvenna í handbolta. Valur hafði betur gegn Aftureldingu í kvöld, 28:18. 

Fyrri hálfleikurinn var jafn framan af, en Valskonur voru sterkar undir lokin og voru fjórum mörkum yfir í hálfleik, 16:12. Valur hélt áfram að bæta í forskotið út seinni hálfleikinn og var sigurinn að lokum sannfærandi. 

Díana Dögg Magnúsdóttir og Sandra Erlingsdóttir voru markahæstar hjá Val með sex mörk og Anamasia Gugió skoraði sjö fyrir Aftureldingu sem er án stiga. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert