Glæsileg tilþrif Óðins í Meistaradeildinni (myndskeið)

Óðinn Þór Ríkharðsson
Óðinn Þór Ríkharðsson Ljósmynd/GOG.dk

Íslendingaliðið GOG frá Danmörku vann öruggan 38:31-sigur á Medvedi frá Rússlandi í annarri umferðinni í Meistaradeild Evrópu í handknattleik. GOG er þar með búið að vinna fyrstu tvo leiki sína.

Þrír Íslendingar leika með GOG, Óðinn Þór Ríkharðsson og Arnar Freyr Arnarsson skoruðu eitt mark hvor og þá kom Viktor Gísli Hallgrímsson við sögu í markinu, hann varði þrjú af þeim tíu skotum sem hann fékk á sig.

Atvik leiksins var hins vegar glæsilegt mark Óðins en twittersíða Meistaradeildarinnar birti tilþrifin og má sjá þau hér að neðan.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert