Stjarnan með fullt hús

Þórey Anna Ásgeirsdóttir hefur farið vel af stað.
Þórey Anna Ásgeirsdóttir hefur farið vel af stað. mbl.is/Haraldur Jónasson/Hari

Stjarnan hefur unnið báða leiki sína til þessa í Olísdeild kvenna í handbolta eftir 26:23-sigur á KA/Þór á heimavelli í dag. KA/Þór er hins vegar án stiga. 

Leikurinn var mjög jafn framan af og var staðan 6:5 þegar fyrri hálfleikur var hálfnaður. Stjarnan varð sterkari eftir því sem leið á hálfleikinn og var staðan í leikhléi 11:8. 

Stjarnan komst sjö mörkum yfir í seinni hálfleik, 19:12. KA/Þór minnkaði muninn undir lokin en tókst ekki að ógna forskoti Stjörnunnar mikið. 

Þórey Anna Ásgeirsdóttir átti mjög góðan leik fyrir Stjörnuna og skoraði tíu mörk og Stefanía Theodórsdóttir skoraði átta. Kristín Jóhannsdóttir og Hulda Bryndís Tryggvadóttir skoruðu fimm mörk hvor fyrir KA/Þór. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert