Rut Arnfjörð Jónsdóttir, landsliðskona í handbolta og leikmaður danska meistaraliðsins Esbjerg, leikur ekki meira á þessu ári.
Rut hefur glímt við meiðsli í fæti og í samráði við félagið hefur verið ákveðið að hún gangist undir aðgerð svo hún geti orðið leikfær eins fljótt og hægt er. Aðgerðina á að framkvæma í dag.
Rut kom til Esbjerg sumarið 2017 og varð danskur meistari með því síðastliðið vor eftir sigur á Herning í úrslitaeinvígi.
Esbjerg er með fjögurra stiga forskot á toppi dönsku úrvalsdeildarinnar.