Skytta úr leik hjá andstæðingum Íslands

Andre Gomes í leik gegn Noregi.
Andre Gomes í leik gegn Noregi. AFP

Stórskyttan Andre Gomes er kominn á sjúkralistann hjá Portúgölum sem eru í milliriðli II ásamt Íslendingum á EM karla í handknattleik í Malmö. 

Gomes sem leikur með Porto í heimalandinu hefði átt að mæta Svíum með félögum sínum í liði Portúgal í kvöld en af því verður ekki. 

Gomes glímir við meiðsli í nára og hefur verið tekinn út úr hópnum en Ísland mætir Portúgal á sunnudag. 

Þótt Gomes sé einungis 21 árs er hann portúgalska liðinu mikilvægur en liðið kom geysilega á óvart með sigri á Frökkum í riðlakeppninni. Í þeim leik skoraði Gomes 4 mörk. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert