Þjóðverjar sterkari í grannaslagnum

Þjóðverjar fagna sigrinum.
Þjóðverjar fagna sigrinum. AFP

Þýskaland fór upp í þriðja sæti milliriðils I á EM karla í handbolta með 34:22-sigri á grönnum sínum í Austurríki í Vín í kvöld. Staðan í hálfleik var 16:13, Þjóðverjum í vil. 

Austurríki byrjaði vel og var staðan 9:7 um miðbik fyrri hálfleiks. Þá náðu Þjóðverjar 9:3 kafla og létu þeir forystuna aldrei af hendi eftir það. Með góðum endaspretti bættu þeir þýsku svo við forskotið. 

Timo Kastening skoraði sex mörk fyrir Þýskaland og Tobias Reichmann gerði fimm. Nikola Bilyk skoraði fimm fyrir Austurríki og Fabian Posch gerði fjögur. 

Þýskaland er í þriðja sæti riðilsins með fjögur stig og Austurríki í sætinu fyrir neðan með tvö stig. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert