Íslendingar mætast í bronsleiknum

Aron Kristjánsson þjálfari Barein
Aron Kristjánsson þjálfari Barein AFP

Katar tryggði sér í kvöld sæti í úrslitaleik Asíumóts karla í handbolta með 28:24-sigri á lærisveinum Arons Kristjánssonar í Barein. Katar mætir Suður-Kóreu í úrslitum, en leikið er í Kúveit. 

Katar var með frumkvæðið nánast allan leikinn og var staðan í hálfleik 14:11. Barein tókst ekki að jafna metin í seinni hálfleik. 

Fyrr í dag hafði Suður-Kórea betur gegn Japan, en Dagur Sigurðsson er þjálfari japanska liðsins. Dagur og Aron mætast því í bronsleiknum. 

Dag­ur hafði bet­ur gegn Aroni, 25:23, þegar Jap­an og Barein mætt­ust í mill­iriðli á mót­inu.

Leikurinn um bronsið og úrslitaleikurinn fara fram á morgun. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert