Frekari keppni aflýst í handboltanum

Karen Knútsdóttir, Ragnheiður Júlíusdótir, Steinunn Björnsdóttir og samherjar í Fram …
Karen Knútsdóttir, Ragnheiður Júlíusdótir, Steinunn Björnsdóttir og samherjar í Fram eru deildameistarar 2020. mbl.is/Árni Sæberg

Frekari keppni á Íslandsmótinu í handknattleik hefur verið aflýst vegna kórónuveirunnar og engir Íslandsmeistarar verða krýndir árið 2020. 

Mikil fundahöld voru í handknattleikshreyfingunni í dag en bæði fundaði stjórn HSÍ þar sem þessi ákvörðun var tekin en einnig var haldinn fundur með formönnum aðildarfélaganna. 

Staðan í deildunum verður látin standa og því er Fram deildarmeistari í Olís-deild kvenna og Valur deildarmeistari í karlaflokki. 

Þór Akureyri og Grótta leika í efstu deild karla á næsta tímabili og FH í efstu deild kvenna. HK og Fjölnir falla úr úrvalsdeild karla og Afturelding úr úrvalsdeild kvenna en það lá fyrir áður en keppni var hætt.

Tilkynning HSÍ: 

„Stjórn HSÍ ákvað á fundi sínum í kvöld að aflýsa öllu frekara mótahaldi á vegum sambandsins. Ákvörðun þessi er tekin í ljósi þess að yfirvöld hafa ákveðið að framlengja samkomubann til 4. maí nk. og er því ljóst að ekki verður unnt að hefja keppnir að nýju þar sem félögin þarfnast að minnsta kosti 2-3 vikna undirbúnings til að geta hafið leik.

Í framhaldi af þessu ákvað stjórn HSÍ að núgildandi staða í mótum myndi standa og samkvæmt því eru deildarmeistarar Olísdeildar kvenna Fram og deildarmeistarar Olísdeildar karla Valur.

Tvö neðstu lið Olísdeildar karla (HK og Fjölnir) falla í Grill 66-deild karla og neðsta lið Olísdeildar kvenna (Afturelding) fellur í Grill 66-deild kvenna. Sæti í Olísdeild karla fá tvö efstu lið Grill 66-deildar karla (Þór Ak. og Grótta) og sæti í Olísdeild kvenna fær efsta lið Grill 66-deildar kvenna (FH).

Ekki verða útnefndir Íslandsmeistarar fyrir þetta keppnistímabil.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert