Tveir leikmenn úr Grafarvogi í Hafnarfjörð

Guðrún Jenný Sigurðardóttir í átökum á línunni í leik með …
Guðrún Jenný Sigurðardóttir í átökum á línunni í leik með Fjölni. mbl.is/Kristinn Magnússon

Guðrún Jenný Sigurðardóttir og Karen Birna Aradóttir hafa haft félagaskipti úr Fjölni í Hauka í handboltanum og verða á Ásvöllum næsta vetur. 

Haukar tilkynntu um félagaskiptin á samfélagsmiðlum í kvöld og þar kemur fram að þær geri tveggja ára samning við félagið. 

Guðrún Jenný er 23 ára línumaður sem er uppalin í Fram en hefur undanfarin ár verið lykilmaður í liði Fjölnis. Á síðasta tímabili var hún markahæðsti leikmaður liðsins.
Karen Birna er 22 ára markmaður sem hefur verið aðalmarkvörður Fjölnis undanfarin ár. 
Fjölnir missir því tvo leikmenn frá sér á einu bretti en liðið er nú sameinað Fylki. 
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert