Valur mætir Íslendingaliði í Evrópudeildinni

Magnús Óli Magnússon og félagar í Val spila í Evrópudeildinni …
Magnús Óli Magnússon og félagar í Val spila í Evrópudeildinni í vetur. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Valur mætir Holstebro frá Danmörku í 1. umferð Evrópudeildarinnar í handknattleik en þar spilar landsliðshornamaðurinn Óðinn Þór Ríkharðsson, sem skipti yfir til félagsins frá GOG í sumar.

Þrjátíu lið mæta til leiks í 1. umferðinni og var drátturinn með nokkuð óhefðbundnu sniði í morgun. Liðunum var raðað í styrkleikaflokka og svæði til að lækka ferðakostnað félaga og forðast óþarfa ferðalög á tímum kórónuveirunnar.

Valur var í neðri styrkleikaflokki á svæði tvö og gat mætt, ásamt Holstebro, Melsungen frá Þýskalandi, Ar­en­dal frá Nor­egi, Azoty-Pu­lawy frá Póllandi og Mal­mö frá Svíþjóð. Fyrstu leikirnir fara fram í lok ágúst.

Evrópudeildin er ný keppni sem kemur í staðinn fyrir EHF-bikarinn en þar er spilað í tveimur umferðum um sæti í riðlakeppni 24 liða. Eftir það tekur við hefðbundin útsláttarkeppni sextán liða.

EHF
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert